Fotbolti.net
03.10.26 - 19:25
Kári Snorrason

Aron um leikjametið og bekkjarsetuna í Lúxemborg - „Breyti ekki ákvörðun þjálfarans“

Auglýsing
Aron um leikjametið og bekkjarsetuna í Lúxemborg - „Breyti ekki ákvörðun þjálfarans“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
„Það er Jákvætt að tengja saman tvo sigra og halda hreinu í tvígang," segir Aron EInar Gunnarsson í samtali við Fótbolta.net eftir 3-0 sigur Íslands á Búlgaríu í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Aron var í byrjunarliði Íslands en fór af velli í hálfleik, hann segir ekki um meiðsli að ræða. „Nei, mér leið vel. Þjálfarinn vildi gera breytingu. Sennilega dreifa álaginu eða því um líkt."
Aron ekki komið við sögu í glugganum - Mun hann ná leikjametinu?
TENGT EFNI

Aron ekki komið við sögu í glugganum - Mun hann ná leikjametinu?

Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Búlgaría
Leikur dagsins var 111. landsleikur Arons og er hann þremur leikjum frá því að bæta leikjamet Birkis Bjarnasonar.

„Auðvitað veit maður af þessu. En ég er ekki að ýta á þjálfarann að breyta hans áherslum eða eitthvað þannig til þess að koma mér inn á. Ef það gerist þá bara gerist það.

Birkir er heldur betur góður þjónn fyrir landið og gaf allt í sölurnar fyrir okkur. Ef hann er með metið þá er það bara þannig. Eigum við ekki bara að deila því saman?,“
sagði Aron og brosti.

Aron var spurður hvort það hafi verið svekkjandi að koma ekki við sögu gegn Lúxemborg þegar Ísland var 3-0 yfir og leikjametið í augsýn.

„Ég breyti ekki ákvörðun þjálfarans. Hann sér leikinn eins og hann sér hann. Ef hann vill fá mig inn er ég alltaf klár, til þess er ég hérna. Það kemur ekki til greina að spá í þessu og finnast þetta svekkjandi ef við unnum leikinn. Fyrst og fremst er ég ánægður með að tengja saman tvo sigra, ég er ekkert að spá í hinu,“ segir Aron að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.