Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 04. ágúst 2021 21:37
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu brotið: Fofana fluttur á sjúkrabörum eftir hræðilega tæklingu
Wesley Fofana spilar líklega ekki mikið fyrir Leicester á þessari leiktíð
Wesley Fofana spilar líklega ekki mikið fyrir Leicester á þessari leiktíð
Mynd: Getty Images
Franski varnarmaðurinn Wesley Fofana meiddist hræðilega í 3-2 sigri á Villarreal í lokaleik liðsins á undirbúningstímabilinu.

Fofana meiddist eftir skelfilega tæklingu frá Fer Nino og ljóst að hann verður líklega frá í einhvern tíma.

Atvikið átti sér stað seint í síðari hálfleiknum og þurfti Fofana að yfirgefa völlinn á börum. Varnarmaðurinn öflugi braut á Fer Nino stuttu áður en Spánverjinn svaraði fyrir sig með ruddalegri tæklingu.

Frakkinn er mikilvægur hlekkur í vörn Leicester og því mikið áfall fyrir enska liðið sem spilar sinn fyrsta leik á tímabilinu gegn Manchester City næstu helgi í leiknum um samfélagsskjöldinn.

Hægt er að sjá tæklingu hér fyrir neðan en hún er ekki fyrir viðkvæma.




Athugasemdir
banner
banner
banner