04.11.26 - 13:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Óvíst hvort Daníel Leó verði með landsliðinu - „Tökum þetta dag frá degi"

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Leó Grétarsson er lykilmaður í varnarlínu íslenska landsliðsins. Hann er hópnum fyrir komandi leiki gegn Búlgaríu og Lúxemborg.
Daníel hefur verið í leyfi frá AGF vegna persónulegra ástæðna og er óvíst hvort hann verði með í landsleikjunum.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari landsliðsins, var spurður út í Daníel á fréttamannafundi í dag.

TENGT EFNI
Landsliðshópurinn - Daníel Leó valinn og Kristian snýr aftur
„Ég vísa í tilkynninguna hjá AGF, þetta eru fjölskylduástæður, við völdum hann í hópinn og höfum verið í góðu sambandi við hann. Svo tökum við þetta dag frá degi held ég, sjáum hvernig aðstæður verða hjá fjölskyldunni. Það er fjölskyldan sem tekur ákvörðunina saman."
„Ef þeim líður vel að hann komi til móts við okkur á Alicante í aðdraganda fyrri leiksins þá gerir hann það. Ef hann er frekar tilbúinn að koma fyrir leikinn gegn Lúxemborg þá gerir hann það. Ef hann er ekki tilbúinn að koma þá munum við kalla inn varamann," sagði Arnar.