Fotbolti.net
04.11.26 - 16:26
Enski boltinn

Sturluð tölfræði Arsenal - Engin ástæða til að hætta þessu

Arsenal situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir sigur á Anfield.

Arsenal situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir sigur á Anfield.

Canon

Mynd: EPA

Arsenal vann 0-1 sigur gegn Liverpool á Anfield síðastliðinn sunnudag. Það var fyrsti sigur Arsenal á þeim leikvangi í 14 ár. En það sem meira var, þá átti Liverpool ekki tilraun á markið í leiknum.

Er það í fyrsta sinn sem það gerist hjá Liverpool í 442 heimaleikjum í ensku úrvalsdeildinni. Það hefur ekki gerst frá því mælingar hófust árið 2003.
„Þeir kasta sér bara fyrir allt og deyja fyrir málstaðinn," sagði Haraldur Örn Haraldsson þegar rætt var um tölfræðina í Enski boltinn hlaðvarpinu.

Liverpool komst í margar góðar stöður í leiknum en Arsenal-liðið elskar að verjast og gera það vel.

Það er ekki kannski sérstaklega skemmtilegt að horfa á Arsenal spila, en fótboltinn sem þeir spila er mjög árangursríkur.

„Þetta er ekki fallegur fótbolti en þetta er að virka hjá þeim, og ég sé enga ástæðu fyrir því að hætta að spila svona," sagði Magnús Atlason í þættinum.

„Það er ekkert lið betra í heimsfótboltanum að loka leikjum, vera leiðinlegir, tefja leikinn, þessir myrkvu töfrar," sagði Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson.

„Þetta minnir mig á Chelsea-liðið hjá Jose Mourinho. Þeir voru ógeðslega góðir í þessum hlutum," sagði Haraldur Örn.

Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.
Úr leik Liverpool og Arsenal.

Úr leik Liverpool og Arsenal.

Canon

Mynd: EPA

Enski boltinn - Leiðinlegir en svo drullugóðir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.