Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 05. febrúar 2023 14:45
Aksentije Milisic
Mourinho: Solbakken skilur ekki taktíkina eins og hinir
Mynd: EPA

Ola Solbakken kom til Roma frá Bodö/Glimmt í byrjun árs en þessi 24 ára gamli sóknarmaður hefur ekki fengið mikinn spiltíma enn sem komið er.


Norðmaðurinn hitaði upp í klukkutíma í gær þegar Roma vann Empoli með tveimur mörkum gegn engu en hann kom hins vegar ekkert við sögu.

„Solbakken skilur ekki taktíkina á þann hátt eins og hinir skilja hana,” sagði Jose.

„Hann veit ekki muninn á 5-3-2 og 3-4-1-2. Hann skilur ekki hápressuna.”

„Hann verður að læra hvernig við spilum. Strákurinn er með hæfileika en hann getur ekki bara komið inn í liðið fyrir einhvern og látið liðið spila áfram með sama strúktúr.”

Roma neyddist til að skilja Ola Solbakken útundan í Evrópudeildinni á dögunum vegna Financial Fair Play reglunnar.


Athugasemdir
banner
banner
banner