Egypski sóknarmaðurinn Mohamed Salah er markahæsti leikmaður Liverpool í ensku úrvalsdeildinni frá upphafi eftir að hafa skorað tvö mörk í 7-0 stórsigrinum á Manchester United á Anfield í dag.
Salah spilaði einn besta leik sinn á tímabilinu en hann skoraði tvö og var þá stöðug ógn í fremstu víglínu.
Egyptinn er nú kominn með 129 úrvalsdeildarmörk fyrir Liverpool sem gerir hann að markahæsta leikmanni félagsins í deildinni frá því hún var sett á laggirnar fyrir 31 ári síðan.
Hógvær Salah ætlaði þó ekkert að sleppa fram af sér beislinu í fögnuði.
„Þetta er mjög sérstakt, get ekki logið því. Þetta met var í huga mínum síðan ég kom hingað. Eftir fyrsta tímabilið fór ég að eltast við það,“ sagði Salah.
„Það að ná þessu í dag gegn United og ná í þessi úrslit er bara magnað. Ég fer núna heim að fagna með fjölskylduna, fæ mér síðan kamillute og beint í svefn,“ sagði Salah.
Athugasemdir