Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Borinn af velli í Árbænum - „Vonum að þetta sé ekki eins slæmt og leit út í fyrstu"
Lengjudeildin
Frá því í gær.
Frá því í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Imran Mehanovic, leikmaður Vestra, var borinn af velli í leik liðsins gegn Fylki í Lengjudeildinni í gær. Imran er 22 ára danskur miðjumaður sem fluttur var með sjúkrabíl á sjúkrahús.

Lestu um leikinn: Fylkir 2 -  0 Vestri

„Hann hitti lækni í gær, hann er ekki búinn að fara í myndatöku en læknirinn sem skoðaði hann í gær heldur að þetta sé ekki krossbandið. Við erum að bíða eftir myndatöku, erum að vona að þetta sé ekki eins slæmt og leit út í fyrstu. Hann verður alltaf frá í einhverjar vikur, en vonandi er þetta ekki alvarlegra en það," segir Samúel Samúelsson sem er meðstjórnandi í stjórn fótboltadeildar Vestra.

„Þetta var skrítið atvik, það er návígi og meiðist ekki á fætinum sem hann stendur í. Ég talaði við Imran í gærkvöldi og í morgun og hnéð á honum er tvöfalt út af bólgum. Við þurfum að bíða eftir myndatöku," segir Sammi.

Imran ólst upp hjá Esbjerg en hefur einnig leikið með Kolding, Horsens, Skive og Hellerup.
Elmar Atli: Of graðir inn í seinni hálfleik
Slapp
banner
banner
banner
banner