Fotbolti.net
24.06.26 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Viss um að hann muni klæðast Aftureldingar treyjunni aftur einn daginn"

Lék frábærlega með Aftureldingu og var fenginn í Breiðablik eftir tímabilið 2020.

Lék frábærlega með Aftureldingu og var fenginn í Breiðablik eftir tímabilið 2020.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Jason Daði Svanþórsson er sterklega orðaður við heimkomu og sagði Fótbolti.net frá því í gær að Jason væri líklega á leið í Víking.

Jason Daði er uppalinn í Aftureldingu og barst Fótbolta.net ábending um að Lengjudeildarliðið hefði rætt við Jason og jafnvel boðið honum samning.

Fótbolti.net ræddi við Magnús Má Einarsson, þjálfara Aftureldingar, í dag.
Jason Daði sterklega orðaður við Víking
TENGT EFNI

Jason Daði sterklega orðaður við Víking

„Við erum alltaf með opinn faðminn og dyrnar galopnar fyrir öfluga uppalda Aftureldingar stráka sem eru að koma heim úr atvinnumennsku erlendis. Axel og Jökull (Andréssynir) sömdu við Aftureldingu í hitteðfyrra eftir mörg ár erlendis og að sjálfsögðu eru Jason Daði, Ísak Snær, Róbert Orri og Bjarki Steinn leikmenn sem við viljum fá heim í Mosfellsbæ einn daginn," segir Maggi.

„Ég veit að Jason er með risastórt Aftureldingar hjarta. Ég er viss um að hann muni klæðast Aftureldingar treyjunni aftur einn daginn en ég er ekki viss um að það verði núna," bætti þjálfarinn við.

Afturelding er í 4. sæti Lengjudeildarinnar eftir að hafa fallið úr Bestu deildinni í fyrra. Liðið mætir þá Fylki í undanúrslitum Mjólkurbikarsins eftir tæpan mánuð.
Mosfellingarnir Róbert Orri og Jason Daði saman í stúkunni á dögunum. Róbert Orri er leikmaður Víkings og léku þeir saman hjá Aftureldingu og Breiðabliki.

Mosfellingarnir Róbert Orri og Jason Daði saman í stúkunni á dögunum. Róbert Orri er leikmaður Víkings og léku þeir saman hjá Aftureldingu og Breiðabliki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Þróttur R.10+1322
2Fylkir10+621
3Vestri11+219
4Afturelding9+616
5HK10016
6Leiknir R.10+115
7Njarðvík10+414
8Grótta9-512
9ÍR10-511
10Grindavík9-38
11Ægir10-87
12Völsungur10-116
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.