Fotbolti.net
05.07.26 - 14:45
Elvar Geir Magnússon

Fann kærustuna í stúkunni og hún varð stjarna

Jayley da Cruz og Sidny Cabral.

Jayley da Cruz og Sidny Cabral.

Canon

Mynd: Instagram

Stjörnurnar verða til á HM og það á ekki aðeins við um leikmenn. Jayley da Cruz varð skyndilega stjarna eftir að kærasti hennar skoraði gegn Argentínu.

Sidny Cabral, sem spilar fyrir Trabzonspor, skoraði stórkostlegt mark (mark mótsins að mati undirritaðs) fyrir Grænhöfðaeyjar og jafnaði leikinn í framlengingu.

Cabral fagnaði með því að hlaupa beint upp í stúku þar sem hann fann kærustu sína, Jayley. Hann neitaði að fara inn á völlinn aftur fyrr en hann hafði gefið henni faðmlag. Úr varð lengsta og eftirminnilegasta fagn mótsins.
Sjáðu HM mörkin: Skoraði mark mótsins gegn heimsmeisturunum
TENGT EFNI

Sjáðu HM mörkin: Skoraði mark mótsins gegn heimsmeisturunum

Jayley hefur margfaldað fylgjendafjölda sinn á Instagram í kjölfarið en þar skrifaði hún til Cabaral: „Ég hef alltaf vitað hvað þú ert fær um að gera, að sjá allan heiminn verða vitni að því líka er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma. Ég er svo stolt af því hvaða manneskja þú ert, innan sem utan vallar."

Grænhöfðaeyjar unnu hug og hjörtu fótboltaáhugafólks á HM en liðið tapaði á endanum fyrir argentínska liðinu og er farið heim.



Fann kærustuna í stúkunni og hún varð stjarna
Canon

Mynd: Instagram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.