Fotbolti.net
05.07.26 - 15:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Árni Vill í viðræðum við Stjörnuna

Árni Vill í viðræðum við Stjörnuna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Árni Vilhjálmsson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net í viðræðum við Stjörnuna og gæti verið á leið til félagsins þegar félagaskiptaglugginn opnar 16. júlí.

Árni, sem er fæddur 1994, spilaði síðast á Íslandi árið 2021, þá með uppeldisfélaginu Breiðabliki. Frá því hefur hann spilað með Rodez í Frakklandi, Zalgiris í Litháen, Novara á Ítalíu og með Al-Taraji og Al-Sahel í þriðju efstu deild í Sádi-Arabíu.
Framherjinn hefur verið orðaður við KR, Breiðablik og Þór en nýjustu fregnir benda til þess að hann gæti endað í Garðabænum. Stjarnan er með þá Emil Atlason og Andra Rúnar Bjarnason sem kosti í fremstu stöðu vallarins.

Á ferlinum hefur Árni einnig spilað í Úkraínu, Póllandi, Noregi og Svíþjóð. Á Íslandi hefur hann eingöngu spilað með Breiðabliki og hálft tímabil (2012) á láni með Haukum. Hann er unnusti Söru Bjarkar Gunnarsdóttur sem fær leikheimild með Haukum 16. júlí.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.