Fotbolti.net
05.07.26 - 15:10
Elvar Geir Magnússon

Lukkuöndin Merlín heillar ensku pressuna

Lukkuöndin Merlín með eigendum sínum.

Lukkuöndin Merlín með eigendum sínum.

Canon

Mynd: EPA

England mætir Mexíkó á miðnætti í kvöld í 16-liða úrslitum HM. Julián Quinones and Raúl Jiménez hafa skorað mörkin fyrir Mexíkó á mótinu en það er samt lukkuöndin Merlín sem fær stærsta plássið í enskum fjölmiðlum.

Merlín hefur slegið í gegn á HM en hún klæðist mexíkósku treyjunni og hefur tekið þátt í gleðinni í Mexíkóborg. Hún hefur slegið í gegn á töfrandi hátt eins og töframaðurinn sem hún er nefnd eftir.
Englandi stafar mikil ógn af óvæntri hetju Mexíkó
TENGT EFNI

Englandi stafar mikil ógn af óvæntri hetju Mexíkó

Eigandi andarinnar heitir Carla Gómez og rekur veitingavagn þar sem hún selur drykki. Sonur hennar Cristian myndar sérstaklega góð tengsl við Merlín.

„Merlín hafði þegar öðlast frægð fyrir að selja drykki. Við viljum ekki skilja hann eftir heima og tökum hann alltaf með í vinnuna. Hann hefur hlotið heimsfrægð á HM og fólk kemur hingað gagngert til að hitta hann," segir Carla.

Full Kit.

Full Kit.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.