Jose Mourinho, stjóri Roma, er að smíða ansi spennandi lið fyrir komandi keppnistímabil.
Mourinho er á leið inn í sitt annað tímabil sem stjóri Roma, en í fyrra endaði liðið í sjötta sæti og varð á sama tíma fyrsta liðið til að fara með sigur af hólmi í Sambandsdeildinni.
Deildin byrjar um næstu helgi og verður fróðlegt að sjá hvað Roma gerir á komandi leiktíð.
Félagið er búið að styrkja sig vel í sumar, meðal annars með Argentínumanninum Paulo Dybala.
Hér að neðan má sjá hvernig Roma getur stillt upp á tímabilinu. Er þetta lið sem getur farið með sigur af hólmi í Serie A?
Mourinho er alveg að smíða lið pic.twitter.com/NVGEFKJRVQ
— Björn Már Ólafsson (@bjornmaro) August 4, 2022
Athugasemdir