Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 05. október 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Adrian og Alisson hafa báðir gert fimm mistök - 70 leikir á milli
Mynd: Getty Images
Adrian átti hörmulegan leik er Liverpool tapaði 7-2 gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.

Adrian gerðist sekur um klaufaleg mistök í fyrsta marki leiksins og átti slakan leik eftir það.

Þegar tölfræðin er skoðuð kemur í ljós að Adrian hefur fimm sinnum gert mistök sem leiða til marks í Liverpool treyju, þrátt fyrir að hafa aðeins spilað 21 leik fyrir félagið.

Alisson hefur gert jafn mörg mistök á dvöl sinni hjá Liverpool en hann er búinn að spila 92 leiki.

Alisson er meiddur næstu vikurnar og því mun Adrian verja mark Englandsmeistaranna eftir landsleikjahlé, nema nýr markvörður verði fenginn í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner