Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 05. nóvember 2020 16:47
Elvar Geir Magnússon
Funheitur Albert byrjar á Spáni
Albert í flugvélinni á leið til Spánar.
Albert í flugvélinni á leið til Spánar.
Mynd: Getty Images
Albert við komuna til Spánar.
Albert við komuna til Spánar.
Mynd: Getty Images
Albert Guðmundsson er að sjálfsögðu í byrjunarliði hollenska liðsins AZ Alkmaar sem mætir spænska liðinu Real Sociedad á útivelli í Evrópudeildinni klukkan 17:55.

Samkvæmt heimasíðu UEFA er hann að spila á hægri vængnum í leiknum í kvöld.

Albert hefur raðað inn mörkum í síðustu leikjum og skoraði tvö mörk í 4-1 sigri AZ gegn króatíska liðinu Rijeka í síðustu viku.

Þá er hann með þrjú mörk í tveimur síðustu leikjum í hollensku deildinni en hann skoraði tvö mörk gegn Waalwijk í 3-0 sigri um síðustu helgi.

AZ hefur unnið báða leiki sína í F-riðli Evrópudeildarinnar en Real Sociedad er með þrjú stig. Napoli er í sama riðli með þrjú stig en Rijeka er stigalaust.

Real Sociedad: Moyà, Gorosabel, Elustondo, Le Normand, Monreal, Portu, Guevara, Merino, David Silva, Oyarzabal, Isak.

AZ: Bizot, Svensson, Hatzidiakos, Koopermeiners, Wijndal, Midtsjø, De Wit, Albert Guðmundsson, Stengs, Karlsson, Boadu.

Leikir dagsins í Evrópudeildinni:

EUROPA LEAGUE: Group A
17:55 Roma - Cluj
20:00 Young Boys - CSKA Sofia

EUROPA LEAGUE: Group B
17:55 Rapid - Dundalk
20:00 Arsenal - Molde (Stöð 2 Sport 2)

EUROPA LEAGUE: Group C
17:55 Slavia Prag - Nice
17:55 Hapoel Beer Sheva - Leverkusen

EUROPA LEAGUE: Group D
17:55 Benfica - Rangers
17:55 Lech Poznan - Standard Liege

EUROPA LEAGUE: Group E
17:55 Omonia - Granada CF
17:55 PAOK - PSV

EUROPA LEAGUE: Group F
17:55 Real Sociedad - AZ (Stöð 2 Sport 2)
17:55 Rijeka - Napoli

EUROPA LEAGUE: Group G
20:00 Leicester - Braga (Stöð 2 Sport 4)
20:00 Zorya - AEK

EUROPA LEAGUE: Group H
20:00 Milan - Lille
20:00 Celtic - Sparta Prag

EUROPA LEAGUE: Group I
17:55 Sivasspor - Qarabag
20:00 Villarreal - Maccabi Tel Aviv

EUROPA LEAGUE: Group J
17:55 Ludogorets - Tottenham (Stöð 2 Sport 4)
20:00 Antwerp - LASK Linz

EUROPA LEAGUE: Group K
20:00 Feyenoord - CSKA
20:00 Dinamo Zagreb - Wolfsberger AC

EUROPA LEAGUE: Group L
20:00 Rauða stjarnan - Gent
20:00 Hoffenheim - Liberec
Athugasemdir
banner
banner