Fotbolti.net
17.09.26 - 11:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Klopp velur 16 nýliða í 44 manna hóp

Jugen Klopp er á leið í sitt fyrsta verkefni sem þjálfari þýska landsliðsins.

Jugen Klopp er á leið í sitt fyrsta verkefni sem þjálfari þýska landsliðsins.

Canon

Mynd: EPA

Jurgen Klopp er á leið í sína fyrstu leiki sem landsliðsþjálfari Þýskalands og hann hefur valið 44 manna hóp fyrir leikina fjóra. Klopp skiptir hópnum í tvennt og markvörðurinn Finn Dahmen hjá Augsburg er sá eini sem er í báðum hópum.

Sextán leikmenn í hópnum hafa ekki spilað með landsliðinu til þessa.

Þýskaland spilar við Holland, Serbíu og svo heima og að heiman gegn Grikklandi í A-deild Þjóðadeildarinnar.
„Ég vil kynnast eins mörgum leikmönnum og hægt er. Þetta er ekki A eða B lið. Hóparnir eru settir saman svo þeir passi inn á völlinn upp á karakter og reynslu að gera."

Á meðal nýliða eru Said El Mala hjá Köln og Younes Ebnoutalib sem hefur skorað fjögur mörk í fjórum leikjum fyrir Frankfurt. Vitaly Janelt hjá Brentford er einnig í hópnum.

Á meðal þeirra sem fá ekki kallið eru Leroy Sane og Pascal Gross. Leon Goretzka og Deniz Undav eru ekki heilir heilsu og Antonio Rudiger og Manuel Neuer eru hættir með landsliðinu.

Joshua Kimmich sem spilaði mikið í vörn þýska landsliðsins undir stjórn Julian Nagelsmann er valinn sem miðjumaður. Marc-Andre ter Stegen er nýr aðalmarkvörður landsliðsins.

Fyrri tveir leikirnir
Markverðir: Marc-Andre ter Stegen (Ajax), Alexander Nubel (Stuttgart), Finn Dahmen (Augsburg)

Varnarmenn: Jonathan Tah (Bayern Munich), Nico Schlotterbeck (Borussia Dortmund), Nathaniel Brown (Bayern Munich), Josha Vagnoman (Stuttgart), Yann Aurel Bisseck (Inter Milan), Hennes Behrens (Augsburg), Max Rosenfelder (Freiburg), Philipp Treu (Freiburg)

Miðjumenn: Joshua Kimmich (Bayern Munich), Nadiem Amiri (Mainz), Felix Nmecha (Borussia Dortmund), Anton Stach (Leeds United), Yannik Engelhardt (Freiburg),

Sóknarmenn: Kai Havertz (Arsenal), Jamal Musiala (Bayern Munich), Lennart Karl (Bayern Munich), Serge Gnabry (Bayern Munich), Kevin Schade (Brentford), Chris Fuhrich (Stuttgart), Bambase Conte (Hoffenheim), Younes Ebnoutalib (Eintracht Frankfurt)

Seinni tveir leikirnir
Markverðir: Noah Atubolu (Eintracht Frankfurt), Finn Dahmen (Augsburg), Jonas Urbig (Bayern Munich)

Varnarmenn: Waldemar Anton (Borussia Dortmund), Ridle Baku (RB Leipzig), Finn Jeltsch (Stuttgart), Maximilian Mittelstadt (Stuttgart), David Raum (RB Leipzig), Malick Thiaw (Newcastle United)

Miðjumenn: Mika Baur (Celtic), Tom Bischof (Bayern Munich), Vitaly Janelt (Brentford), Felix Keidel (Elversberg), Aleksandar Pavlovic (Bayern Munich)

Sóknarmenn: Karim Adeyemi (Barcelona), Jonathan Burkardt (Eintracht Frankfurt), Nick Woltemade (Juventus), Said El Mala (Koln), Brajan Gruda (RB Leipzig), Florian Wirtz (Liverpool), Derry Scherhant (Freiburg)
Said El Mala er einn af sextán nýliðum.

Said El Mala er einn af sextán nýliðum.

Canon

Mynd: EPA

Vitaly Janelt fær kallið frá Klopp.

Vitaly Janelt fær kallið frá Klopp.

Canon

Mynd: EPA

Kimmich valinn sem miðjumaður.

Kimmich valinn sem miðjumaður.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.