Fotbolti.net
Stjórnin gegn frjálsræðinu

17.09.26

Stjórnin gegn frjálsræðinu

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

KR og Víkingur mætast á nýjan leik í Bestu deild karla, rúmum tveimur vikum eftir að liðin skildu jöfn í æsispennandi leik þar sem bæði mörkin komu í uppbótartíma.

Þegar tímabilið er skoðað í gegnum tölfræðina kemur ýmislegt áhugavert í ljós um bæði lið; hvernig þau sækja, hvernig þau skapa færi, hvernig þau verjast og hvar styrkleikar þeirra og veikleikar liggja.

Við köfum ofan í tölurnar og skoðum KR og Víking frá fleiri hliðum.
Tvær gjörólíkar leiðir á toppinn
TENGT EFNI

Tvær gjörólíkar leiðir á toppinn



Stjórn gegn frjálsræði
Þrátt fyrir að KR og Víkingur séu tvö lið sem vilja hafa boltann, sækja hratt og pressa hátt eru leiðir þeirra ólíkar. Tölurnar sýna að bæði lið eru í sérflokki þegar kemur að því að stjórna leikjum, en styrkleikar þeirra birtast með ólíkum hætti.

KR er með boltann meira en nokkurt annað lið í deildinni, 60,7 prósent að meðaltali, en Víkingur kemur þar næstur með 57,5 prósent. KR er einnig með flestar nákvæmar sendingar í leik, 414,5 að meðaltali, á móti 409,2 hjá Víkingi. Bæði lið eru sömuleiðis í efstu tveimur sætunum þegar kemur að stórum marktækifærum, þar sem Víkingur er með 98 og KR 92.

Sóknarleikur KR er þó sérstaklega áberandi. Vesturbæingar skora 3,4 mörk að meðaltali í leik, mest allra í deildinni, og eiga 9,3 skot á mark í leik, einnig mest. KR er jafnframt með hæsta xG deildarinnar, 72,17.
Víkingar eru næstir í öllum þessum flokkum og eru kannski vanmetið sóknarlið, en þegar tölurnar eru færðar yfir á hinn enda vallarins verður munurinn á liðunum mun skýrari. Víkingur hefur fengið á sig aðeins 1,0 mark að meðaltali í leik og haldið hreinu átta sinnum. KR hefur aðeins haldið hreinu einu sinni og fengið á sig 2,2 mörk að meðaltali.

Í 'expected goals against' er munurinn sömuleiðis mikill. Víkingur hefur aðeins fengið á sig 21,54 xG, minnst allra liða í deildinni, á meðan KR er með 48,58.

„Víkingar eru gríðarlega sterkir varnarlega og fá hvorki á sig færi né mörk,“ sagði þjálfarinn Halldór Árnason þegar hann ræddi liðin fyrr á tímabilinu.

Hann benti þá á að Víkingur hefði árum saman spilað eftir sömu hugmyndum og að leikmenn liðsins væru mjög vel æfðir í sínu hlutverki. Það gæti hjálpað til við að útskýra hvers vegna liðið er ekki aðeins að skora mikið, heldur einnig að halda andstæðingum í skefjum. KR nálgast leikinn á annan hátt.
Stjórnin gegn frjálsræðinu

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

„KR er ekki positional play lið heldur meira lið sem spilar af miklu frjálsræði,“ sagði Halldór og lýsti leikstíl Vesturbæinga sem meira byggðum á tengslum leikmanna og hreyfingu í kringum boltann.

Það má sjá ákveðna samsvörun í tölunum. KR hefur langflestar snertingar í teig andstæðinga, 1072, á meðan Víkingur er næst þar á eftir með 802. Vesturbæingar vilja einfaldlega fá boltann inn á hættusvæðin aftur og aftur.

Þrátt fyrir ólíka nálgun eru bæði lið hins vegar ákaflega árásargjörn án bolta. KR er með lægsta PPDA deildarinnar, 8,26, og Víkingur næst með 9,43. Það er því ekki þannig að annað liðið vilji stjórna leiknum með boltanum en hitt bíði til baka. Bæði vilja vinna boltann aftur hratt og spurningin er frekar hvað þau gera þegar þau fá hann.

KR vill galopna leikinn
Ef það er eitthvað sem tölurnar segja mjög skýrt er það að KR og Víkingur nálgast sóknarleikinn með ólíkum áherslum. KR er ekki aðeins með boltann mikið heldur virðist liðið vilja nota boltann til að ýta leiknum áfram og koma sem oftast inn á hættusvæði.
Það sést meðal annars á því að KR hefur átt 1072 snertingar í vítateig andstæðinganna, langflestar í deildinni. Víkingur er næst á eftir með 802. KR er jafnframt með 92 stór marktækifæri, tveimur færri en Víkingur, þrátt fyrir að hafa skorað meira.

Víkingur skapar fleiri dauðafæri en KR, 98 gegn 92, en KR er með hærra heildar-xG og skorar fleiri mörk. Það bendir til þess að KR sé stöðugt að koma sér í góðar stöður og halda uppi miklum sóknarþunga.

Þegar liðin mættust síðast fengu bæði lið 18 skottilraunir, en Víkingur var með hærra xG, 1,94 gegn 1,56. KR var þó með boltann meira og pressaði mun ákafar.

Þetta gæti skipt miklu máli í næsta leik. KR vill helst að leikurinn verði opinn og hraður þar sem leikmenn geta notað hreyfingarnar í kringum boltann til að skapa pláss. Víkingur hefur hins vegar sýnt að það þarf ekki mikið til að liðið geti refsað þegar andstæðingurinn opnar sig.
Stjórnin gegn frjálsræðinu

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Þorlákur Árnason lýsti einmitt KR sem áhættusömu og hugrökku liði fyrr á tímabilinu og sagði leikstílinn geta valdið því að upplifun áhorfenda sé „bæði stórkostleg og óþægileg“.

Sá sem lætur allt tikka hjá KR
TENGT EFNI

Sá sem lætur allt tikka hjá KR



Það er líklega ágæt lýsing á því sem getur beðið Víkings. KR er með langflestar snertingar í teig andstæðinga og skorar meira en nokkurt annað lið. En til þess að ná þessum sóknarlegu yfirburðum tekur liðið líka mikla áhættu. Og gegn Víkingi, sem hefur fengið langminnst xG á sig í deildinni, gæti það orðið dýr áhætta.

Víkingur er með forskotið þegar leikurinn er undir stjórn
Þar sem KR sækir með miklum fjölda leikmanna og tekur áhættu í leit að mörkum verður varnarleikurinn áhugaverður þegar liðið missir boltann. Þar hefur Víkingur ákveðið forskot, að minnsta kosti samkvæmt tölunum.
Víkingur hefur einungis farið í 1026 varnar­einvígi á tímabilinu og er þar í efsta sæti deildarinnar, sem sagt farið í fæst einvígi. KR er með 1281 einvígi, en það segir ekki að liðið verjist betur frekar að það komist oftar í aðstæður þar sem það þarf að takast á við andstæðinginn. Þetta er mjög athyglisverð tölfræði út frá því hversu gott sóknarlið Víkingur er.

Það passar við myndina af liðunum. KR pressar hátt og af gríðarlegum ákafa. Víkingur er einnig með mikinn ákafa án bolta, en hefur fengið mun minna af mörkum og færum á sig yfir tímabilið. Í síðasta leik liðanna var KR 54 prósent með boltann og komst 71 sinni með boltann inn á vallarhelming Víkings. Víkingur var með 65 slíkar sóknir. Þegar kom að vítateignum var hins vegar munurinn lítill: KR náði 22 sinnum inn í teiginn en Víkingur 25 sinnum.

Víkingur er með þannig lið að það getur leyft andstæðingnum að hafa boltann án þess að það skapist hættuleg tækifæri og hættulegar stöður.

Það sást einnig á xG-tölunum úr leiknum. Þrátt fyrir að KR væri meira með boltann og pressaði mun meira skapaði Víkingur 1,94 xG á móti 1,56 hjá KR.
Stjórnin gegn frjálsræðinu

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Víkingar eru alveg tilbúnir að leyfa KR að hafa boltann á meðan þeir bíða eftir rétta augnablikinu.

Síðast þegar liðin mættust
Þegar KR og Víkingur mættust síðast, 1. september, var tölfræðin úr leiknum áhugaverð. Leiknum lauk 1-1 og bæði mörkin komu í uppbótartíma. Ármann Ingi Finnbogason kom Víkingi yfir á 92. mínútu en Arnór Ingvi Traustason jafnaði fyrir KR fjórum mínútum síðar.

Þeir stálu senunni í risaleiknum á Meistaravöllum
TENGT EFNI

Þeir stálu senunni í risaleiknum á Meistaravöllum



Bæði lið áttu 18 skot, en Víkingur skapaði aðeins meiri hættu samkvæmt væntum mörkum, 1,94 xG gegn 1,56 hjá KR. Bæði lið áttu fimm skot á markrammann.
KR var meira með boltann, 54 prósent gegn 46 prósentum, og átti fleiri sendingar, 454 gegn 353. Vesturbæingar voru einnig mun ákafari í pressunni og mældust með 7,3 í PPDA á móti 14,5 hjá Víkingi.

Það áhugaverða er því að KR stjórnaði meira af leiknum en Víkingur skapaði samt meiri hættu.

Víkingur var sérstaklega hættulegt í fyrri hálfleik. Liðið var með 1,35 xG fyrir hlé en KR 1,14. Í seinni hálfleik datt xG beggja liða niður, í 0,59 hjá Víkingi og 0,42 hjá KR.

Þar má því sjá ákveðna mynd sem passar við stærri tölfræðina úr tímabilinu. KR getur haft boltann og þrýst andstæðingnum til baka, en það tryggir ekki að liðið skapi bestu færin. Víkingur þarf ekki að vera með jafn mikla boltameðferð eða jafn háa pressu til að skapa hættu. Í fyrri leiknum vildu Víkingar nýta sér það að KR kemur hátt á völlinn og þeir voru með fljóta kantmenn sem sóttu á bak við línurnar. Það verður áhugavert að sjá hvort Víkingur fari í sömu áherslur núna því KR er ekkert að fara að breyta sínum.
Stjórnin gegn frjálsræðinu

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Hver fær að stjórna leiknum?
Þegar KR og Víkingur mætast er áhugavert að velta fyrir sér hvoru liðinu tekst að koma leiknum í það form sem hentar því betur. KR vill hafa boltann, sækja hratt og pressa andstæðinginn hátt, á meðan Víkingur hefur sýnt að liðið þarf ekki endilega að vera með yfirhöndina á boltanum til að hafa stjórn á leiknum, þó þeir séu yfirleitt með boltann.

Síðasti leikur liðanna er ágæt vísbending um þetta. KR var 54 prósent með boltann, átti 454 sendingar og pressaði mun ákafar en Víkingur. Þrátt fyrir það var Víkingur með hærra xG, 1,94 gegn 1,56, og komst oftar inn í vítateig andstæðingsins, 25 sinnum gegn 22.

Það er því ekki sjálfgefið að það að KR sé meira með boltann þýði meiri stjórn á leiknum. Víkingur getur leyft KR að hafa boltann í ákveðnum svæðum og samt fundið leiðir til að skapa hættulegri færi.

Þetta gæti orðið lykilatriði á laugardaginn. Ef KR nær að halda pressunni uppi, vinna boltann hátt á vellinum og fá marga leikmenn nálægt vítateig Víkings gæti leikurinn þróast í þá átt sem Vesturbæingar vilja. Ef Víkingur nær hins vegar að spila sig út úr fyrstu pressunni, sótt hratt og komið boltanum inn á hættusvæðin sín getur leikmyndin breyst hratt.
Það er því spurning hvort KR tekst að stjórna hraðanum eða hvort Víkingum takist að stjórna rýminu.

Var KR að undirbúa sig fyrir Víking?
Það er eitt atriði úr síðasta leik KR sem er sérstaklega áhugavert þegar horft er fram á leikinn gegn Víkingi.

Í 5-1 sigrinum á ÍA var KR í fyrsta sinn á tímabilinu minna með boltann en andstæðingurinn, 46,68 prósent gegn 53,32. Það er talsverð breyting fyrir lið sem hefur alla leiktíðina viljað stjórna leikjum sínum með boltann.

En niðurstaðan var ekki slæm. Þvert á móti. KR skoraði fimm mörk og vann öruggan sigur.
Stjórnin gegn frjálsræðinu

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Það er því freistandi að spyrja hvort eitthvað hafi verið að breytast í nálgun KR, eða hvort leikurinn gegn ÍA hafi einfaldlega verið tilviljunarkennt frávik frá því sem liðið hefur gert í sumar.

Var KR mögulega að prófa sig áfram með aðra nálgun fyrir leikinn gegn Víkingi? Þetta var í fyrsta sinn í sumar þar sem andstæðingur KR var talsvert meira með boltann.

Víkingur er langbesta lið deildarinnar
Það er ekki aðeins markatala og stigatafla sem setja Víking í þessa stöðu. Þegar undirliggjandi tölfræði tímabilsins kemur í ljós að Víkingur er bara langbesta lið deildarinnar.

Víkingur er með 51 expected point, mest allra liða í deildinni. KR er í þriðja sæti þess lista með 42 vænt stig. Það er áhugavert í ljósi þess að Víkingur er einnig með níu stiga forskot á KR í raunverulegu stigatöflunni, 56 stig gegn 47.
Tveir bestu leikmennirnir í sviðsljósinu
TENGT EFNI

Tveir bestu leikmennirnir í sviðsljósinu



Á laugardaginn gæti þessi munur því orðið endanlegur. Víkingur getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri og þarf þá ekki að treysta á úrslit annarra leikja.

Tölfræðin styður einnig við þá mynd að Víkingur hafi verið stöðugra liðið yfir tímabilið. Liðið er með 63,41 xG, næstmest í deildinni, en KR er efst með 72,17. Þegar horft er á varnarleikinn snýst dæmið hins vegar við: Víkingur er með aðeins 21,54 xGA, langminnst allra, á meðan KR er með 48,58.

Það er þessi jafnvægi milli sóknar og varnar sem gerir tölfræðilega mynd Víkings svo sterka. KR hefur verið ógnarsterkt fram á við en Víkingur hefur tekist að halda sömu sóknarlegu ógninni ásamt því að gefa andstæðingum mun minna.
Á laugardaginn getur því orðið ljóst hvort tölfræðilega besta liðið fær einnig verðlaunin sem besta lið deildarinnar.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.