Fotbolti.net
05.11.26 - 12:31
Kári Snorrason

Eftirminnileg augnablik Ronaldo og Íslands - „Þeir munu aldrei vinna neitt“

Vanda Sigurgeirs réttir Ronaldo blómvönd fyrir 200. landsleik Portúgalans.

Vanda Sigurgeirs réttir Ronaldo blómvönd fyrir 200. landsleik Portúgalans.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Cristiano Ronaldo tilkynnti fyrr í dag að hann hefði leikið sinn síðasta landsleik fyrir Portúgal. Hann kveður landsliðsfótboltann sem leikja- og markahæsti landsliðsmaður sögunnar.

Ronaldo mætti íslenska landsliðinu fimm sinnum á ferlinum, þar af tvisvar á Laugardalsvelli. Ýmis eftirminnileg atvik hafa tengt portúgölsku stórstjörnuna við íslenska landsliðið í gegnum tíðina og því er vel við hæfi að rifja nokkur þeirra upp.
Ronaldo hættur með landsliðinu (Staðfest)
TENGT EFNI

Ronaldo hættur með landsliðinu (Staðfest)

Lék sinn 200. landsleik á Laugardalsvelli
Ronaldo afrekaði það á Laugardalsvelli í júní 2023 að verða sá fyrsti til að leika 200. landsleiki. Vanda Sigurgeirsdóttir, þáverandi formaður KSÍ, afhenti þeim portúgalska blómvönd fyrir leik.

Ronaldo skoraði sigurmark leiksins undir lokin og tók sitt fræga 'Sui' fagn.

Vildi fá fréttamann Fótbolta.net til Al Nassr
Í aðdraganda 200. landsleiksins mætti Ronaldo á blaðamannafund á Laugardalsvelli. Sæbjörn Þór Steinke, fréttamaður Fótbolta.net, spurði Ronaldo af öllum leikmönnum heims hvern myndi hann vilja fá til Al Nassr.

Hann hugsaði sig um í nokkrar sekúndur og benti síðan á Sæbjörn og sagði: „You," og uppskar mikinn hlátur úr salnum.
Myndband: Ronaldo grínaðist við fréttamann Fótbolta.net
TENGT EFNI

Myndband: Ronaldo grínaðist við fréttamann Fótbolta.net


Sár eftir jafnteflið á EM
Ronaldo var afar ósáttur eftir 1-1 jafntefli við Ísland á EM í Frakklandi 2016 og vandaði íslenska liðinu ekki kveðjuna eftir leik.

„Þeir fögnuðu eins og þeir hefðu unnið Evrópumótið. Það er hugsunarháttur þess litla. Þess vegna munu þeir aldrei vinna neitt," sagði Ronaldo á blaðamannafundi eftir leik.

Nokkrum dögum eftir leikinn bætti Ronaldo um betur og kastaði hann míkrafóni erlends fréttamanns í vatn eftir að hann spurði hann út í hvort portúgalska landsliðið væri tilbúið í næsta leik.

Ronaldo: Ísland mun aldrei vinna neitt
TENGT EFNI

Ronaldo: Ísland mun aldrei vinna neitt


Aron fékk ekki treyjuna
Eftir jafnteflið gegn Íslandi á EM tók Ronaldo ekki í hendur á leikmönnum íslenska liðsins og reyndi Aron Einar Gunnarsson að fá treyju stórstjörnunnar eftir leik án árangurs.

Í kjölfarið fór í gang herferð á samfélagsmiðlum undir merkinu „Shirts for Aron" þar sem hresst fólk fór að bjóða Aroni Einari treyjur. Íslenska liðið gaf Aroni síðan Ronaldo treyju í sárabótagjöf.

Skoraði í fyrstu heimsókninni á Laugardalsvöll
Ronaldo heimsótti Laugardalsvöll í fyrsta sinn árið 2010, í undankeppni EM, og þar vann Portúgal 3-1 sigur.

Hann skoraði þar beint úr aukaspyrnu framhjá Gunnleifi Gunnleifssyni markverði Íslands en hin mörk portúgalska liðsins gerðu Raúl Meireles og Helder Postiga. Heiðar Helguson skoraði mark Íslands.
Skoraði sigurmarkið á Laugardalsvelli 2023.

Skoraði sigurmarkið á Laugardalsvelli 2023.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ósáttur með fagnaðarlæti íslenska liðsins eftir jafnteflið.

Ósáttur með fagnaðarlæti íslenska liðsins eftir jafnteflið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron fékk ekki treyjuna.

Aron fékk ekki treyjuna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði úr aukaspyrnu í fyrstu heimsókn sinni á Laugardalsvelli.

Skoraði úr aukaspyrnu í fyrstu heimsókn sinni á Laugardalsvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.