Fotbolti.net
06.01.23 - 21:23
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Stuðningsmenn United til Lampard: Þú verður rekinn á morgun

Stuðningsmenn United til Lampard: Þú verður rekinn á morgun
Canon

Mynd: EPA

Manchester United hefur endurheimt forystuna gegn Everton en það var Conor Coady sem varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark eftir að hafa jafnað metin í fyrri hálfleiknum.

Frank Lampard er undir mikilli pressu og margir á því að hann verði rekinn ef það fari illa í kvöld. Stuðningsmenn Manchester United ögruðu Lampard með því að syngja til hans eftir að United komst aftur yfir.

„Þú verður rekinn á morgun," sungu stuðningsmennirnir.

Everton og Alex Iwobi urðu fyrir áfalli þegar hann meiddist á ökkla eftir tæklingu frá Tyrell Malacia strax í upphafi síðari hálfleiks og þurfti að bera hann af velli.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.