Fotbolti.net
06.05.19 - 22:24
Sverrir Örn Einarsson

Halldór Smári: Of fljótir að rífa upp flautuna

Auglýsing
Halldór Smári: Of fljótir að rífa upp flautuna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Smári Sigurðsson stóð sem fyrr vaktina í vörn Víkinga í 1-1 jafntefli þeirra við FH í kvöld. Víkingar leiddu 1-0 í hálfleik eftir skelfileg mistök Gunnars Nielsen í marki FH og brottrekstur Brands Olsens en FHingar náðu að jafna með snyrtilegu marki Halldórs Orra Björnssonar um miðbik seinni hállfleiks.
„Já 100% , Við erum lið sem viljum vera að klára svona leik þannig að við þurfum bara að halda áfram að vinna í okkar hlutum en þetta eru klárlega tvö töpuð stig.“

Víkingar léku vel í um 60 mínútur af leiknum en féllu aftar þegar leið á leikinn sem bauð hættunni heim.

„Það var ekkert lagt upp með að fara að bakka eitthvað þetta er bara eitthvað sem gerist ég hef ekki alveg útskýringu á því núna en þetta er bara eitthvað sem við þurfum að skoða.“

Mark var dæmt af Víkingum þegar Sölvi Geir Ottesen stangaði hornspyrnu í netið en var dæmdur brotlegur. Hvernig horfði það við Halldóri?

„Ég held að Gummi Kri hafi hreinlega bara ekki ráðið við hann. Hann er náttúrlega algjört beast hann Sölvi og ég held að dómarar séu helvíti fljótir að rífa upp flautunna þegar hann er í kontakt við einhverja leikmenn.“

Sagði Halldór Smári en allt viðtalið má sjá hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.