Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
banner
   mán 06. júní 2022 21:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alfons: Eitthvað sem við verðum að taka úr okkar leik
Alfons Sampsted.
Alfons Sampsted.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er mun svekktari eftir leikinn gegn Ísrael," sagði Alfons Sampsted, bakvörður Íslands, eftir jafntefli gegn Albaníu á Laugardalsvelli.

„Okkar tilfinning er sú að við áttum hættulegri færi, við vorum með hærra orkustig og heilt yfir með betri tök á leiknum. Heilt yfir vorum við einhverjum skrefum fyrir ofan þá."

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  1 Albanía

„Það var meiri stjórn frá okkar hálfu í þessum leik... í dag pressuðum við Albaníu hátt og þvingum þá til senda langt, svo erum við að vinna bolta tvö og þrjú."

Það hefði klárlega verið hægt að koma í veg fyrir mark Albaníu. „Þetta er eitthvað sem við verðum að taka úr okkar leik. Við ætlum ekki að gefa andstæðingnum neitt, sérstaklega ekki á heimavelli."

„Ef við náum að taka það úr okkar leik, þá höfum við tekið annað skref. Vonandi náum við að hækka einbeitingu okkar yfir 90 mínútur," sagði Alfons.

Allt viðtalið er hér að ofan.
Athugasemdir
banner