Fotbolti.net
06.07.26 - 07:58
Ívan Guðjón Baldursson

Sjáðu rauða spjaldið sem Quansah fékk í nótt

Sjáðu rauða spjaldið sem Quansah fékk í nótt
Canon

Mynd: EPA

England heimsótti Mexíkó í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í nótt og skóp sigur á Azteca leikvanginum sem er í rúmlega 2,2km hæð yfir sjávarmáli.
Jude Bellingham skoraði tvennu og bjargaði marki í afar spennandi 2-3 sigri þar sem Englendingar léku manni færri nánast allan seinni hálfleikinn.

Staðan var 1-2 þegar Jarell Quansah fékk að líta beint rautt spjald fyrir glæfralega tæklingu.

Tíu Englendingar svöruðu með að tvöfalda forystuna úr vítaspyrnu en heimamenn minnkuðu muninn aftur niður eftir vítaspyrnu á hinum endanum, svo staðan var orðin 2-3 þegar 20 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Mexíkóar sköpuðu fínar stöður en þeim tókst ekki að búa til sérlega hættuleg færi, svo lokatölur urðu 2-3. Mexíkó er því úr leik á meðán England mætir Noregi í afar spennandi slag í 8-liða úrslitum.

Thomas Tuchel þjálfari Englands var í vandræðum með hægri bakvarðarstöðuna fyrir sigurinn gegn Mexíkó. Núna er hann í enn frekari vandræðum eftir þetta rauða spjald.

Sjáðu tæklinguna

HM: Tíu Englendingar höfðu betur í Mexíkóborg
TENGT EFNI

HM: Tíu Englendingar höfðu betur í Mexíkóborg

Sjáðu rauða spjaldið sem Quansah fékk í nótt
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.