26.07.26 - 12:14
Brynjar Ingi Erluson
Þurfa að slá metið til að landa Barcola

PSG vill 145 milljónir punda fyrir Barcola

Mynd: EPA

Liverpool þarf að slá metið í annað sinn til þess að landa Bradley Barcola frá Paris Saint-Germain í sumar.

TENGT EFNI
Liverpool leiðir kapphlaupið um Barcola
Liverpool leiðir kapphlaupið um hinn 23 ára gamla Barcola, sem vill yfirgefa Evrópumeistara PSG í sumar.
Barcola hefur hafnað því að skrifa undir nýjan samning en núverandi samningur hans rennur út eftir tvö ár.
PSG er opið fyrir sölu en samkvæmt blaðamanninum Fabrice Hawkins ætlar félagið ekki að hlusta á tilboð undir 145 milljónum punda. Frakkarnir horfa meðal annars til kaupverðsins á Morgan Rogers til Chelsea og Elliot Anderson til Manchester City. Þá hefur Barcola orðið Evrópumeistari í tvígang og átti öflugt heimsmeistaramót.
Verði Liverpool tilbúið að greiða uppsett verð yrði Barcola dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Hann myndi slá met sænska framherjans Alexander Isak, sem Liverpool keypti frá Newcastle United fyrir 125 milljónir punda á síðasta ári.
Barcola hefur sett Liverpool í forgang, takist félaginu að semja við PSG. Það virðist þó hægara sagt en gert miðað við verðmiðann enda metur Liverpool leikmanninn töluvert lægra.
Félögin eru byrjuð að ræða saman og ætti að skýrast á næstu dögum hvort þau geti fundið einhvern milliveg.
Luis Enrique, þjálfari PSG, hefur verið skýr með að hann vilji aðeins leikmenn sem eru fullkomlega skuldbundnir félaginu. Hann ætlar heldur ekki að lofa neinum föstu sæti í liðinu.