Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 06. september 2020 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Finnst nýr sóknarmaður Leeds líkur Lewandowski
Rodrigo fagnar marki með spænska landsliðinu.
Rodrigo fagnar marki með spænska landsliðinu.
Mynd: Getty Images
Thiago, miðjumaður Bayern München, er stórorður í garð sóknarmannsins Rodrigo.

Rodrigo gekk nýlega í raðir Leeds frá Valencia fyrir 27 milljónir punda.

Thiago segir að Rodrigo minni sig á liðsfélaga sinn hjá Bayern, Pólverjann Robert Lewandowski.

„Hann getur skorað mikið af mörkum. Hann hjálpar okkur í pressunni, að hlaupa... ég sé líkindi með honum og Lewandowski, sem hefur skorað mörg frábær mörk," sagði Rodrigo á blaðamannafundi.

Rodrigo er 29 ára gamall. Hann mun bera mikla ábyrgð í sóknarleik Leeds sem eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner