28.11.26 - 12:54
Brynjar Ingi Erluson
Erik Sandberg framlengir á Akranesi (Staðfest)

Erik Tobias Sandberg

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Erik Tobias Sandberg

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Erik Tobias Sandberg hefur framlengt samning sinn við ÍA til ársloka 2028.
Norski miðvörðurinn gekk til liðs við ÍA árið 2024 og hefur síðan þá leikið 81 leik fyrir félagið. Hann hefur verið gríðarlega mikilvægur hlekkur í liðinu og reynst öflugur leiðtogi innan sem utan vallar.
Nú er ljóst að hann verður áfram á Akranesi, en hann hefur framlengt samning sinn og mun leika með Skagamönnum í að minnsta kosti tvö tímabil til viðbótar.
Sandberg er 26 ára gamall og uppalinn hjá Lilleström, en hann lék einnig með Jerv og Skeid í heimalandinu áður en hann kom til Íslands.
Hann á að baki fjölda leikja með yngri landsliðum Noregs, þar sem hann var meðal annars liðsfélagi Erling Braut Haaland, framherja Manchester City.
Þeir félagar stofnuðu á sínum tíma rappsveitina Flow Kingz og gáfu meðal annars út lagið Kygo Jo, sem vakti aftur mikla athygli í sumar þegar Kygo gaf út nýja útgáfu af því.

Besta karla - Efri hluti
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 27 | +51 | 64 |
| 2 | KR | 27 | +35 | 56 |
| 3 | Fram | 27 | +9 | 47 |
| 4 | ÍA | 27 | -1 | 38 |
| 5 | Breiðablik | 27 | -3 | 36 |
| 6 | Keflavík | 27 | -11 | 30 |