Fotbolti.net
28.11.26 - 19:23
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Brasilísk veisla í Ispwich

Alysson

Alysson

Canon

Mynd: EPA

Ipswich Town 2 - 2 Aston Villa
0-1 Alysson ('16 )
1-1 Emersonn ('18 )
1-2 Joao Gomes ('26 )
2-2 Leif Davis ('56 )
Brasilíumenn voru í aðalhlutverki þegar Ipswich og Aston Villa gerðu jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Brasilíumaðurinn Alysson kom Aston Villa yfir þegar Johan Manzambi sendi hann í gegn. Strax í kjölfarið náði Emersonn, landi Alysson, að jafna metin þegar hann fékk boltann inn á teignum, tók hann niður og skoraði.

Þriðji Brasilíumaðurinn bætti síðan við öðru marki Aston Villa en þar var Joao Gomes á ferðinni þegar hann skoraði með laglegri bakfallsspyrnu.

Englendingurinn Leif Davis bjargaði stigi fyrir Ipswich þegar hann skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Julio Enciso.

Enciso var nálægt því að tryggja Ipswich sigurinn þegar hann átti skot fyrir utan teiginn en Zion Suzuki varði vel frá honum og jafntefli var niðurstaðan.

Aston Villa er í 11. sætii með 15 stig eftir 12 umferðir en Ipswich er í 15. sæti með 12 stig.
Emersonn

Emersonn

Canon

Mynd: Ipswich

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Brentford12+1320
6Leeds12+820
7Bournemouth11+418
8Aston Villa12-217
9Chelsea12-116
10Everton11-216
11Tottenham11+115
12Hull City11+214
13Newcastle11-313
14Nott. Forest12-512
15Coventry12-1112
16Fulham11-211
17Ipswich Town12-811
18Sunderland11-99
19Man Utd12-138
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.