
„Mér fannst við spila mjög vel, pressa á þá vel og spiluðum góða vörn. Þetta var mjög flottur leikur," sagði Hákon Arnar Haraldsson, leikmaður U21 landsliðsins, um leikinn við Hvíta-Rússland í síðustu viku.
Þann leik vann Ísland 2-1 og skoraði Skagamaðurinn ungi bæði mörkin eftir að hafa komið inn á sem varamaður snemma leiks.
„Maður var ekki alveg að búast við því að koma inn á sem varamaður á fimmtu mínútu, en maður þarf alltaf að vera klár. Davíð kallaði í mig Stalla og Gústa að fara að hita upp. Ég hitaði upp í svona þrjár mínútur og fór svo beint inn á."
Hann var spurður að því hvort hann gerði ekki tilkall í að byrja næsta leik á morgun, gegn Grikklandi. „Maður bíður bara og sér hvað þjálfarinn velur."
Hákon, sem er 18 ára, er á mála hjá FC Kaupmannahöfn í Danmörku. Þar er hann hluti af aðalliðshópnum.
„Ég hef verið í akademíunni, U19 og það er stórt skref að fara upp í aðalliðið. Það er allt annað tempó og betri leikmenn. Það er gaman bara."
Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið á dögunum. Verða leikirnir ekki fleiri á þessu tímabili? „Vonandi! Ég verð að halda áfram að bæta mig og standa mig, þá koma vonandi fleiri tækifæri."
U21 landsliðið fór á EM í fyrra. Markmiðið er auðvitað að komast á annað stórmót. „Það er markmiðið og svo að vinna kannski vinna EM bara," sagði Hákon léttur.
Sjá einnig:
Sjáðu mörkin: Hákon Arnar afgreiddi Hvíta-Rússland
Athugasemdir