Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 06. október 2020 17:33
Victor Pálsson
Agbonlahor: Ég vorkenni Zaha
Mynd: Getty Images
Gabriel Agbonlahor, fyrrum leikmaður Aston Villa, vorkennir sóknarmanninum Wilfried Zaha sem spilar með Crystal Palace.

Zaha hefur lengi verið orðaður við önnur félög en hann er af mörgum talinn besti leikmaður Palace og er afar ógnandi í sóknarlínu liðsins.

Arsenal reyndi að næla í leikmanninn fyrr á þessu ári sem og í fyrra en Palace neitaði að selja.

Ekkert félag náði að krækja í Zaha á lokadegi félagaskiptagluggans í gær og finnur Agbonlahor því til með vængmanninum sem vill komast burt miðað við eigin orð.

„Ég vorkenni honum. Hann var orðaður við Arsenal síðasta sumar og varð reiður því hann fékk ekki að fara," sagði Agbonlahor.

„Í dag er hægt að sjá að hann vill fá að spila í hærri gæðaflokki, hann er nógu góður til þess. Missti hann af tækifærinu? Það er eins og hann sé búinn að gera allt mögulegt fyrir Palace."


Athugasemdir
banner
banner