Fotbolti.net
21.09.26 - 12:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fimm draga sig úr enska landsliðinu

Rice verður ekki með.

Rice verður ekki með.

Canon

Mynd: EPA

Enska sambandið hefur gefið út að þeir Tino Livramento, Kobbie Mainoo, Cole Palmer, Marcus Rashford og Declan Rice verða ekki með enska landsliðinu í komandi leikjum í Þjóðadeildinni.

Í morgun bárust fréttir af því að Cole Palmer yrði ekki með og Morgan Gibbs-White var kallaður inn. Búið er að kalla James Garner hjá Everton líka inn í hópinn.
Frá Dúbaí í enska landsliðið
TENGT EFNI

Frá Dúbaí í enska landsliðið

Livramento er bakvörður Newcastle, Mainoo er miðjumaður Man Utd, Palmer er sóknarmaður Chelsea, Rashford er sóknarmaður Man Utd og Declan Rice er miðjumaður Arsenal. Rice hefur verið algjör lykilmaður í landsliðinu undanfarin misseri.

Hópurinn eftir breytingar (24)

Markverðir: Jordan Pickford (Everton), Jason Steele (Brighton), James Trafford (Leeds United)

Varnarmenn: Trent Alexander-Arnold (Real Madrid), Jarrad Branthwaite (Everton), Trevoh Chalobah (Como), Marc Guehi (Manchester City), Lewis Hall (Newcastle), Ezri Konsa (Arsenal), Nico O'Reilly (Manchester City), Jarell Quansah (Bayer Leverkusen)

Miðjumenn: Elliot Anderson (Manchester City), Jude Bellingham (Real Madrid), Myles Lewis-Skelly (Arsenal), Alex Scott (Bournemouth), Morgan Gibbs-White (Nottingham Forest), James Garner (Everton)

Sóknarmenn: Harry Kane (Bayern Munich), Dominic Calvert-Lewin (Leeds United), Eberechi Eze (Arsenal), Anthony Gordon (Barcelona), Rio Ngumoha (Liverpool), Morgan Rogers (Chelsea), Bukayo Saka (Arsenal)
Mainoo ekki heldur.

Mainoo ekki heldur.

Canon

Mynd: EPA

James Garner á að baki tvo A-landsleiki.

James Garner á að baki tvo A-landsleiki.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.