21.09.26 - 13:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Omar Sowe með samkomulag við KR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Omar Sowe mun samkvæmt heimildum Fótbolta.net að öllum líkindum ganga í raðir KR eftir tímabilið.
Framherjinn var orðaður við KR í sumar, er með lausan samning eftir tímabilið og mun hann ganga í raðir KR ef hann stenst læknisskoðun hjá félaginu að tímabili loknu.
Omar verður 26 ára í næsta mánuði og er fæddur í Gambíu. Hann kom fyrst til Íslands árið 2022 og varð þá Íslandsmeistari undir stjórn Óskars Hrafns Þorvaldssonar, núverandi þjálfara KR, hjá Breiðabliki.

Omar fór svo til Leiknis og eftir tímabilið 2024 samdi hann við ÍBV og hefur hann skorað níu mörk í deild og bikar í 21 leik fyrir liðið.
Hann sleit krossband í maí í fyrra og sneri aftur um ári seinna. Hann hefur skorað fimm mörk í Bestu deildinni á þessu tímabili og er markahæsti leikmaður ÍBV á tímabilinu.