Fotbolti.net
21.09.26 - 11:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Frá Dúbaí í enska landsliðið

Frá Dúbaí í enska landsliðið
Canon

Mynd: EPA

Morgan Gibbs-White hefur verið kallaður inn í enska landsliðshópinn fyrir komandi leiki í Þjóðadeildinni eftir að Cole Palmer dró sig úr hópnum.

Talað er um að Palmer, leikmaður Chelsea, hafi dregið sig úr hópnum út af álagsstýringu, en það vekur athygli þar sem Chelsea og Palmer eru og verða ekki í Evrópukeppni í vetur.
Palmer dregur sig úr enska hópnum
TENGT EFNI

Palmer dregur sig úr enska hópnum

Gibbs-White var mættur með fjölskyldu sinni til Dúbaí og var þar í fríi þegar kallið frá landsliðinu kom.

Hann er 26 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem á að baki sex A-landsleiki. Hann hefur verið hjá Nottingham Forest síðan 2022.

England mætir Spáni, Króatíu og Tékklandi heima og að heiman í komandi landsleikjahrinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.