Fotbolti.net
21.09.26 - 11:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Steypustöðin

Sterkust í 19. umferð - Hefur sett viðmiðið svo hátt

Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)

Agla María Albertsdóttir.

Agla María Albertsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í annað sinn í sumar er Agla María Albertsdóttir sterkasti leikmaður umferðarinnar í boði Steypustöðvarinnar.

Hún átti mjög sterkan leik þegar Breiðablik vann mikilvægan 4-1 sigur á Grindavík/Njarðvík.
Sterkust í 18. umferð - Elskar Ísland
TENGT EFNI

Sterkust í 18. umferð - Elskar Ísland

„Skoraði fyrsta markið, átti skotið sem Kristín Dís náði frákastinu af í öðru markinu og átti svo stoðsendingu í þriðja markinu sem Edith skoraði. Var stöðug ógn við vörn gestanna," skrifaði Snæbjört Pálsdóttir í skýrslu sinni frá leiknum.

Agla María hefur níu sinnum verið í sterkasta liði umferðarinnar í sumar, oftast allra leikmanna.

Það er í raun orðið sjálfgefið að Agla María sé frábær í Bestu deildinni, hún hefur sett viðmiðið gríðarlega hátt. Með réttu ætti hún í raun ekki að vera að spila í deildinni en hún elskar greinilega að vera í Kópavoginum.

Agla María hefur skorað eða lagt upp 18 mörk í sumar sem er mest allra leikmanna í Bestu deildinni. Hún er með einu marki meira en Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir, liðsfélagi sinn í Breiðabliki. Agla María er þá með 18,49 í 'expected goals and assists' og er því óheppin að hafa ekki komið að fleiri mörkum.

Breiðablik er á toppnum með betri markatölu en FH þegar þrír leikir eru eftir í efri hluta deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.