Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 06. október 2022 14:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Birkir í draumaliðinu ásamt Sanchez og Lewandowski
Birkir Bjarnason.
Birkir Bjarnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á samfélagsmiðlinum eru fótboltafélög að vinna með ýmislegt skemmtiefni fyrir stuðningsfólk sitt.

Roma á Ítalíu hefur verið að fá leikmenn til að búa til fimm manna draumalið með svokölluðum fána 'filter'. Þar sem leikmenn fá einhvern fána af handahófi og þurfa þannig að velja leikmann frá því landi í sitt draumalið.

Nicolo Zaniolo, miðjumaður Roma, valdi á dögunum sitt draumalið með fánum af handahófi.

Svo skemmtilega vildi til að hann fékk íslenska fánann en hann valdi Birki Bjarnason í liðið sitt. Birkir, sem er 34 ára, lék áður fyrr á Ítalíu með Sampdoria og Pescara.

Zaniolo valdi einnig Alexis Sanchez, Matías Vina, Robert Lewandowski og Fernando Muslera í sitt lið en hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan.

@asroma Serious ball knowledge from Nicolò 👏 #asroma #football #seriea #5aside ♬ Bamboleo x Narcos Remix - Nalo

Athugasemdir
banner
banner
banner