Fotbolti.net
07.01.22 - 19:26
Victor Pálsson

Liverpool sendi njósnara fimm sinnum til Portúgals í fyrra

Liverpool sendi njósnara fimm sinnum til Portúgals í fyrra
Canon

Mynd: EPA

Liverpool hefur sent njósnara fimm sinnum að horfa á sóknarmanninn Luis Diaz sem spilar með Porto í Portúgal.
Það er Fabrizio Romano sem greinir frá þessu en Liverpool er sterklega orðað við Diaz sem hefur skorað 14 mörk í 24 leikjum á tímabilinu.

Romano segir að Liverpool hafi sent njósnara fimm sinnum á leiki Porto í fyrra en að engar viðræður eigi sér stað að svo stöddu.

Diaz er 24 ára gamall Kólumbíumaður en hann hefur leikið með Porto frá 2019 og skorað 24 deildarmörk í 74 leikjum.

Einnig tekur Romano fram að það sé í fyrirrúmi hjá Liverpool að tryggja framlengingu á samningi Mohamed Salah.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.