Steini Halldórs: Ekki ákveðið hver verður í marki á þriðjudaginn
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari var að vonum ánægður eftir öruggan 5-0 sigur gegn Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM.
„Mér fannst þetta vera öruggur leikur og við vorum með hann undir stjórn frá fyrstu mínútu nánast. Að ná markinu svona snemma gaf okkur ró og opnaði leikinn aðeins," sagði hann eftir leik.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir lék í íslenska markinu í dag og var Þorsteinn spurður út í þá ákvörðun.
„Sandra (Sigurðardóttir) er ekki orðin 100% klár, er að jafna sig eftir meiðsli og ég ákvað að láta Cecilíu spila í dag. Það er ekki flóknara en það," sagði Þorsteinn og sagðist ekki vera búinn að ákveða hver verði í markinu á þriðjudaginn gegn Tékklandi. Hann sé ekki byrjaður að hugsa út í það hvernig hann stillir upp liðinu þar.
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar ræðir Þorsteinn meðal annars um breiddina í hópnum og komandi leik gegn Tékklandi.