Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 07. ágúst 2020 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Seedorf: Real Madrid getur komið til baka gegn City
Clarence Seedorf
Clarence Seedorf
Mynd: The Sun
Hollenska goðsögnin Clarence Seedorf er fullviss um að Real Madrid eigi möguleika á því að komast áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar.

Manchester City vann fyrri leikinn 2-1 á Santiago Bernabeu en síðari leikurinn fer fram í kvöld á Etihad.

Real Madrid er án Sergio Ramos og þá voru þeir Gareth Bale og James Rodriguez geymdir heima en Bale hafnaði tækifærinu að spila gegn City.

„Ef þú horfir á Real Madrid án þess að skoða úrslitin þá eru þeir líklegri aðilinn til að fara áfram en Manchester City er líka topplið. Það verður erfitt að fara þangað og snúa við taflinu en ekkert er ómögulegt. Real Madrid getur gert það en það verður erfitt," sagði Seedorf.
Athugasemdir
banner
banner