Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 07. október 2019 12:38
Brynjar Ingi Erluson
Guðlaugur Victor í liði umferðarinnar í Þýskalandi
Guðlaugur Victor Pálsson
Guðlaugur Victor Pálsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenski landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson er í liði umferðarinnar í þýsku B-deildinni. Þetta er í annað sinn á tímabilinu sem hann er í liði umferðarinnar. Það er þýska vefsíðan Kicker sem stendur fyrir valinu.

Guðlaugur Victor gekk til liðs við Darmstadt í janúar frá Zürich í Sviss en hann var valinn í lið umferðarinnar eftir fyrstu umferð tímabilsins.

Hann var lykilmaður þá í liðinu er það gerði 1-1 jafntefli gegn Karlsruher á föstudag og var verðlaunaður með sæti í liði 9. umferðar.

Darmstadt er í næst neðsta sæti B-deildarinnar með 8 stig.

Guðlaugur Victor er í íslenska landsliðshópnum fyrir leikina gegn Frakklandi og Andorra.
Athugasemdir
banner
banner
banner