Portúgalski miðjumaðurinn Tiago er á förum frá Fram en hann greinir frá þessu á Instagram síðu sinni.
Tiago hefur verið í lykilhlutverki hjá Fram í Inkasso-deildinni undanfarin tvö tímabil en 24 ára gamli leikmaður skoraði tvö mörk í 21 leik í sumar.
Eftir tímabilið var hann valinn í lið ársins í vali þjálfara og fyrirliða í Inkasso-deildinni.

„Tíma mínum í Fram er lokið," skrifaði Tiago á Instagram síðu sína.
„Ég vil þakka liðsfélögum mínum, þjálfurum og öllum hjá félaginu fyrir þessi tvö ár þar sem var alltaf komið vel fram við mig."
„Ég vona að þið getið náð markmiði ykkar og komið Fram þar sem félagið verðskuldar að vera!! takk fyrir."
Athugasemdir