Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 07. desember 2019 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Móðir Messi: Særandi þegar gagnrýnin fer of langt
Mynd: Getty Images
Móðir Lionel Messi heitir Celia Cuccittini og hefur farið gríðarlega lítið fyrir henni í fjölmiðlum þrátt fyrir að sonur hennar sé einn af bestu knattspyrnumönnum allra tíma.

Messi hreppti sjötta Gullknött ferilsins fyrr í desember og var móðir hans gríðarlega stolt af honum. Hún talaði þó um hluta af gagnrýninni sem sonur sinn verður fyrir og viðurkenndi að sumt sem hún sæi væri særandi.

„Það getur verið særandi þegar fólk fer of langt í að gagnrýna hann. Auðvitað getur ekki öllum líkað við hann," sagði Celia í viðtali við CNN Radio.

„Við bjuggumst ekki við að hann myndi vinna sjötta knöttinn, þetta kom okkur skemmtilega á óvart. Hann hefur legið undir mikilli gagnrýni og trúið mér, þessi fjölskylda veit mjög vel að Messi er enn í skuld við argentínska landsliðið.

„Það er enginn sem þráir meira að sigra Heimsmeistaramót eða Copa America heldur en hann sjálfur. Hann á líka slæma leiki, við erum ekki feimin við að gagnrýna hann þegar það á við. Ég er dugleg að láta hann heyra það þegar mér finnst hann ekki nógu góður með landsliðinu."


Messi er 32 ára gamall og hefur gert 70 mörk í 138 landsleikjum.

Hér fyrir neðan má sjá skemmtilegt myndband af honum á æfingu í gær eftir að hafa hlotið Gullknöttinn fyrr í vikunni.


Athugasemdir
banner
banner
banner