Fotbolti.net
20.09.26 - 20:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jói Kalli: Myndu vera lykilmenn fyrir okkur inn í framtíðina

Auglýsing
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH.

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta er frábær sigur, góð frammistaða að langflestu leyti og sérstaklega fyrri hálfleikurinn," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson eftir 5-2 sigur gegn Stjörnunni í Bestu deild karla í kvöld.
Lestu um leikinn: FH 5 - 2 Stjarnan
FH-ingar voru mjög klínískir í fyrri hálfleiknum og skoruðu fjögur mörk með stuttu millibili.

„Við vildum vera beinskeyttir og fyrri hálfleikurinn var frábær að mínu leyti. Við vildum keyra svolítið á þá. Við erum með hraða fram á við og gæði."

Leikmenn FH lögðu gríðarlega mikið í leikinn og hentu sér fyrir allt.

„Það voru læti í þessum leik, það var stöðubarátta. Það eru líkamlega sterkir leikmenn hérna inn á. Við vorum tilbúnir að fara í bardagann og vinna einvígin. Við höfum statt og stöðugt verið að bæta okkur í því. Þú átt alltaf að geta lagt þessa grunnvinnu á þig. Þá líka skína gæðin í ljós."

Jóhannes Kristinn Bjarnason hefur komið sterkur inn í lið FH og átti góðan leik í dag. Hann er á láni frá Víkingum. Viltu ekki halda honum áfram?

„Jú, algjörlega. En það er ekki í okkar höndum. Við sjáum þegar Jói kemur inn ásamt fleirum að þetta eru klárlega leikmenn sem við vildum fá inn í liðið. Þetta eru klárlega leikmenn sem við viljum halda til framtíðar og myndu vera lykilmenn fyrir okkur inn í framtíðina," sagði Jói Kalli og talaði einnig um Erling Agnarsson sem er á láni frá Víkingum, eins og Jóhannes Kristinn.

FH tók stór skref í átt að því að halda sér í deildinni með sigrinum í dag.

„Þetta var þéttur pakki og við vissum að sigrarnir myndu telja mikið. Það eru ekki bara sigrarnir og stigin sem við erum ánægðir með. Núna eru tveir leikir í röð þar sem frammistaðan er góð, við erum að skora mörk, erum agressívir og með sterka liðsheild, það er það sem ég er ánægðastur með."

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Jóhannes Kristinn Bjarnason er á láni frá Víkingum.

Jóhannes Kristinn Bjarnason er á láni frá Víkingum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH vann mikilvægan sigur í dag.

FH vann mikilvægan sigur í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.