20.09.26 - 21:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Neville: Carrick verður að hætta að verja leikmennina

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Gary Neville, sérfræðingur á Sky Sports og fyrrum leikmaður Man Utd, er mjög ósáttur við Michael Carrick, stjóra liðsins.
Man Utd náði í jafntefli gegn Fulham í dag með marki frá Matheus Cunha undir lokin. Liðið tapaði um síðustu helgi gegn Man City og féll úr leik í enska deildabikarnum eftir tap gegn Brighton.

Neville gagrýndi leikmenn Man Utd og sagði að það vantaði orku og ákefð. Michael Carrick var ósammála því.
„Mér fannst við ekki vera aðgerðarlausir, fannst þér það? Við stjórnuðum stórum hluta fyrri hálfleiks og spiluðum góðan fótbolta í dag. Það verða tímabil þar sem maður fær ekki að ráða ferðinni," sagði Carrick í viðtali við Sky Sports eftir leikinn.
„Ég hef aldrei séð Man Utd lið labba út úr stöðu eins mikið. Michael sagði að það hafi ekkert verið að orkunni í liðinu," sagði Neville.
„Hann verður að hætta að verja leikmennina. Ég skil af hverju hann gerir það, hann er tryggur. Hann vill að leikmenn leggi hart að sér fyrir hann og það er nóg eftir af tímabilinu."
„Ég segi sjaldan að lið leggi ekki hart að sér eða skorti ákefð. Það er versta gagnrýni sem hægt er að gefa leikmönnum. Ég vanda mig alltaf við að segja þetta en þessar fyrstu 15 mínútur af seinni háflelik og heilt yfir fyrstu 60 mínúturnar voru skammarlegar. Alls ekki nógu góðir án boltans," sagði Neville að lokum.