Fotbolti.net
20.09.26 - 19:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Arbeloa: Dómararnir leyfðu Man Utd ekki að tapa

Arbeloa: Dómararnir leyfðu Man Utd ekki að tapa
Canon

Mynd: EPA

„VIð vorum svo nálægt þessu. Aftur vorum við svolítið óheppnir. Viðvissum að þetta yrði erfitt gegn þessu stórliði," sagði Alvaro Arbeloa, stjóri Fulham, eftir jafntefli gegn Man Utd.
Arbeloa var mjög ósáttur með dómgæsluna í leiknum. Harry Maguire fékk aukaspyrnu í aðdraganda jöfnunarmarks Man Utd í lokin en hann taldi að Maguire hafi dottið of auðveldlega.

Hann sagði að atvik um síðustu helgi hafi haft áhrif á dómgæsluna í dag. Ensku dómarasamtökin viðurkenndu mistök eftir leik Man Utd og Man City en sigurmark Erling Haaland hefði ekki átt að standa.

„Þeir fengu öll brot. Áður en þeir skora er brotið á Maguire, hann er 100 kíló. Allar ákvarðanir voru þeim í hag. Ég vissi eftir leikinn gegn Man City að þeir myndu ekki leyfa Man Utd að tapa hér. Við áttum meira skilið."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.