Fotbolti.net
20.09.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

„Glazers og Sir Jim Ratcliffe verða að fara"

„Glazers og Sir Jim Ratcliffe verða að fara"
Canon

Mynd: EPA

Stuðningsmannaklúbbur múslima hjá Manchester United krefst þess eigendur félagsins selji það. Þeir eru afar ósáttir með nýjustu ummæli Sir Jim Ratcliffe í viðtali við BBC.
Skoða hvort Ratcliffe hafi brotið reglur með ummælum um innflytjendur
TENGT EFNI

Skoða hvort Ratcliffe hafi brotið reglur með ummælum um innflytjendur

Ratcliffe, sem stofnaði risastóra jarðolíufyrirtækið INEOS, er einn af auðugustu mönnum Bretlands og hefur talað gegn auknum innflytjendastraumi í landinu.

Hann telur Bretland fara stöðugt versnandi útaf háum sköttum og óviðráðanlegum straumi innflytjenda. Hann talaði opinskátt um þessa skoðun sína í fjölmiðlum í febrúar og aftur í viðtali við BBC á dögunum.

„Við fordæmdum þessi ummæli fyrr í vetur og hann (Ratcliffe) baðst afsökunar á orðalaginu sem hann notaði. Við vonuðum að hann hefði lært eitthvað af þessu, en greinilega ekki," segir meðal annars í yfirlýsingu frá stuðningsmannaklúbbi múslima hjá Manchester United.

„Herra Jim hefur aftur kennt innflytjendum um versnandi stöðu Bretlands og urðum við fyrir miklum vonbrigðum þegar við heyrðum ummælin. Þau eru með öllu óásættanleg."

Stuðningsmannaklúbbur múslima segist upprunalega hafa verið spenntur þegar tilkynningin barst um að Ratcliffe væri að kaupa rúman fjórðungshlut í félaginu, en meðlimir klúbbsins hafa skipt um skoðun. Þeir eru ósáttir með hækkandi miðaverð og ýmsar aðrar aðgerðir Ratcliffe sem stjórnanda og telja þeir nýjustu ummæli hans í fjölmiðlum vera dropann sem fyllir mælinn.

„Nú er komið nóg, það er kominn tími á breytingar. Glazers og Sir Jim Ratcliffe verða að fara."
„Glazers og Sir Jim Ratcliffe verða að fara"
Canon

Mynd: EPA

„Glazers og Sir Jim Ratcliffe verða að fara"
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.