20.09.26 - 20:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lárus Orri: Sýndu heldur betur hvað í þeim býr
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA vann öruggan sigur á Breiðabliki í dag. Fótbolti.net ræddi við Lárus Orra Sigurðsson, þjálfara ÍA, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍA 4 - 1 Breiðablik
„Ég er gríðarlega ánægður með strákana. Viðhorfið hvernig þeir nálguðust leikinn. Það voru staðráðnir í að mæta vel peppaðir og með mikla orku til leiks því þetta er búið að vera pínu erfið vika eftir KR leikinn. Menn mættu ekki til leiks þar og voru alls ekki góðir fyrstu 20 mínúturnar. Menn sýndu heldur betur hvað í þeim býr," sagði Lárus Orri.
ÍA er með jafn mörg stig og Breiðablik í 4. - 5. sæti en liðið getur í besta falli endað í 4. sæti.
„Þetta eru öðruvísi verkefni eins og í fyrra þegar við vorum að berjast fyrir lífi okkar. Núna er verkefnið að peppa sig upp fyrir leikina. Það er hægt að segja að mótið sé búið þó það sé í raun ekki búið. Það er hellingur að spila fyrir, það er heiður að fá að vera í Skagaskyrtunni og spila í frábæru veðri gegn Blikum. Menn eru að berjast um sæti í liðinu og stöðunni fyrir næsta ár. Svo er fjórða sætið, við höfum ekki verið í fjórða sæti í mörg ár. Það er hellingur að peppa sig upp fyrir," sagði Lárus Orri.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 24 | +50 | 59 |
| 2 | KR | 24 | +28 | 47 |
| 3 | Fram | 24 | +12 | 46 |
| 4 | Breiðablik | 24 | +1 | 33 |
| 5 | ÍA | 24 | -3 | 33 |
| 6 | Keflavík | 24 | -8 | 29 |