Fotbolti.net
20.09.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson

„Hvernig er hann ekki á 30 manna lista fyrir Ballon d'Or?"

„Hvernig er hann ekki á 30 manna lista fyrir Ballon d'Or?"
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski sóknarleikmaðurinn Raphinha hefur leikið á alls oddi á upphafi nýs tímabils með Spánarmeisturum Barcelona.
Spánn: Óstöðvandi Raphinha með þrennu
TENGT EFNI

Spánn: Óstöðvandi Raphinha með þrennu

Hann er kominn með 14 mörk og 3 stoðsendingar í 7 fyrstu leikjum tímabilsins og setti hann öll þrjú mörk Barca í 1-3 sigri gegn Sevilla í gærkvöldi. Það var önnur þrennan hans á þremur dögum eftir að hafa sett þrjú í stórsigri gegn Racing Santander á miðvikudaginn.

„Þessi markaskorun hjá Raphinha kemur mér bara ekkert á óvart. Hann er einstakur leikmaður eins og Lamine Yamal, ég hef alltaf sagt það. Að mínu viti eru þeir bestu leikmenn í heimi," sagði Hansi Flick stjóri Barcelona eftir sigurinn.

Luis García, þjálfari Sevilla, tók undir orð kollega sins.

„Í fótbolta eru sumir hlutir sem ég skil ekki. Einn af þeim er að Raphinha er ekki á 30 manna lista fyrir Ballon d'Or verðlaunin. Hvernig er það hægt?" sagði García meðal annars eftir lokaflautið.

Raphinha missti af stórum hluta síðustu leiktíðar vegna meiðsla en kom þrátt fyrir það með beinum hætti að 29 mörkum í 33 leikjum í öllum keppnum og hjálpaði Börsungum að vinna deildina annað árið í röð.
„Hvernig er hann ekki á 30 manna lista fyrir Ballon d'Or?"
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.