Það helsta í fótboltaslúðrinu er tekið saman af BBC og er samantektin í boði Powerade.
Enski landsliðsmaðurnn Eberechi Eze (25) er með riftunrákvæði í samningi sínum. Hægt er að kaupa hann lausan á 60 mlljónir punda. Tottenham er á meðal félaga sem eru áhugasöm. (Mail)
Aston Villa þarf að fá inn 60 milljónir punda fyrir sölu á leikmönnum í sumar til að koma í veg fyrir brot á fjármálareglum úrvalsdeildarinnar. (Football Insider)
Bruno Guimaraes (26) segist vera mjög ánægður hjá Newcastle. Arsenal og Man City hafa áhuga á Brassanum. (Mirror)
Fyrrum stjóri Chelsea, Frank Lampard (45), vill snúa aftur í þjálfun og hefur hafnað tilboðum. (Talksport)
Fyrrum stjóri Manchester United, Ole Gunnar Solskjær, gæti tekið við Leicester. (Sun)
Bayern Munchen hefur hafið viðræður við Fulham um kaup á Joao Palhinha (28) sem var nálægt því að verða leikmaður félagsins síðasta haust. Bayern er til í að greiða um 38 milljónir punda. (Sky Sport í Þýskalandi)
Newcastle er að skoða mögulega sölu á gambíska vængmanninum Yankuba Minteh (19) eftir að hann stóð sig vel hjá Feyenoord á láni. Arne Slot, fyrrum þjálfari Feyenoord og nú þjálfari Liverpool, hefur áhuga. (Telegraph)
Kieran Tierney (27) myndi elska að snúa aftur til Celtic. Arsenal er tilbúið að hlusta á tilboð í sumar. (Football Insider)
Man City er með augastað á Adam Wharton (20) hjá Crystal Palace. Það er þó ólíklegt að meistarnir reyni að kaupa hann í sumar. (Standard)
Wolves er að reyna kaupa Rodrigo Gomes (20) frá Braga en Atletico Madrid hefur líka áhuga. (Express og Star)
Viðræður milli Mainz og Liverpool eru í gangi um kaup þýska félagsins á Sepp van den Berg. (Florian Plettenberg)
Caoimhin Kelleher (25) gæti yfirgefið Liverpool í sumar. Brentford og Celtic hafa áhuga. (Liverpool Echo)
Liverpool skoðar Alan Varela (22) miðjumann Porto. (Football Insider)
Tottenham og Bayern hafa áhuga á Chris Fuhrich (26) vængmanni Stuttgart. (Bild)
Napoli hefur boðið í Romelu Lukaku (31). Napoli býður Chelsea 13 milljónir punda og svo 2,5 milljónir í bónusgreiðslur. (La Repubblica)
Real Sociedad hefur hafið viðræður við Manchester City um kaup á vinstri bakverðinum Sergio Gomez (23). (Fabrizio Romano)
Celtic hefur áhuga á Chris Mepham (26) en Bournemouth vill fá 8 milljónir punda fyrir velska varnarmanninn. (Wales Online)
Dortmund skoðar að fá Jake O'Brien (23) varnarmann Lyon í sumar. Everton og AC Milan hafa líka áhuga. (Independent)
Bernardo Silva er að reyna sannfæra samlanda sinn Joao Neves (19) um að ganga í raðir City frá Benfica í stað þess að velja Man Utd. (Goal)
Ipswich, Norwich og Celtic hafa öll áhuga á framherjanum Aiden McGinlay (17) sem spilar með Queen's Park. (Daily Record)
Minnihlutaeigendur í Manchester United, INEOS, vilja selja franska félagið Nice. (Independent)
Athugasemdir