„Þetta var jafn leikur," sagði Pep Guardiola, stjóri Manchester City, eftir jafnteflisleik við Liverpool í stórslag í ensku úrvalsdeildinni.
„Við áttum í smá basli til að byrja með því þeir voru með fjóra menn í fremstu víglínu. Salah og Mane voru að spila á milli línanna, en við náðum að aðlagast og eftir það vorum við með meiri stjórn," sagði Guardiola við BBC.
„Það hvernig við spiluðum og höguðum okkur eftir mark þeirra, það var ótrúlegt. Ég er svo stoltur af leikmönnunum mínum."
„Munurinn var sá að þeir skoruðu úr sinni vítaspyrnu en við klúðruðum okkar."
Guardiola vill hafa fimm skiptingar í ensku úrvalsdeildinni, ekki aðeins þrjár. „Víða um heiminn eru fimm skiptingar lykilatriði."
Lið fengu varla undirbúningstímabil og lið eins Man City og Liverpool eru að spila marga leiki á stuttu tíma. Guardiola telur að það myndi hjálpa mikið að fá að gera fimm skiptingar í leikjum í deildinni.
Athugasemdir