Fotbolti.net
08.11.26 - 10:54
Brynjar Ingi Erluson

Vildi ekki gera mikið úr bogamáli Dedic

Amar Dedic

Amar Dedic

Canon

Mynd: EPA

Amar Dedic, leikmaður Newcastle United, komst í fréttirnar á dögunum af heldur óvenjulegri ástæðu, en Bosníumaðurinn sást með boga og örvar í Northumberland í vikunni, nokkuð sem fæstir hefðu líklega átt von á.
Lögregla skarst í leikinn þegar leikmaður Newcastle sást með boga
TENGT EFNI

Lögregla skarst í leikinn þegar leikmaður Newcastle sást með boga

Lögreglu barst tilkynning um að Dedic væri vopnaður boga og örvum við snyrtistofu í Northumberland og mætti á staðinn til að ræða við Bosníumanninn.

Dedic reyndist ekki nægilega kunnugur lögunum og var málið leyst á staðnum, en atvikið var engu að síður stórfurðulegt.

Matthias Jaissle, stjóri Newcastle, sem þekkir Dedic vel eftir að hafa þjálfað hann hjá RB Salzburg, hikaði ekki við að velja hann í byrjunarliðið gegn Fulham og var hann einn af bestu mönnum liðsins.

Jaissle var spurður út í atvikið eftir leikinn og skildi lítið í því hvers vegna verið væri að gera svona mikið veður út af málinu.

„Hann spilaði vel, er það ekki? Þetta mál hafði engin áhrif á hann og hann vissi ekki af reglunum. Við þurfum ekki að gera stórmál úr þessu,“ sagði Jaissle.

Stuðningsmenn Newcastle höfðu greinilega gaman af uppákomunni og sungu um Dedic á meðan leiknum stóð. Bosníumaðurinn gladdist mjög yfir stuðningnum og brosti til þeirra áður en hann gekk inn í leikmannagöngin.

Málið er allt hið spaugilegasta, en það er ekki ólöglegt að eiga boga á Englandi þótt ákveðnar reglur gildi um meðferð hans og notkun. Það er hins vegar ólöglegt að veiða dýr með boga.

Lögreglan komst að þeirri niðurstöðu að Dedic hefði ekki ætlað sér að nota bogann til veiða og ekkert benti til þess að hann hefði haft illan ásetning og því þykir ólíklegt að það verði einhverjir eftirmálar af þessu.
Matthias Jaissle, stjóri Newcastle

Matthias Jaissle, stjóri Newcastle

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.