Ajax er sagt vilja fá Matthijs de Ligt, miðvörðinn efnilega, á láni frá Juventus. De Ligt var seldur frá Ajax til Juve í sumar en hefur ekki náð að blómstra á Ítalíu.
Varnarmaðurinn kostaði 68 milljónir punda í sumar.
Varnarmaðurinn kostaði 68 milljónir punda í sumar.
Portúgalski fjölmiðillinn A Bola segir Ajax fylgjast grant með stöðu mála hjá de Ligt. Ef hlutirnir þróast ekki til hins betra í Tórínó er Ajax sagt tilbúið að bjarga miðverðinum frá Ítalíu, tímabundið.
Merih Demiral hefur verið að fá fleiri sénsa í vörn Juventus undanfarið og samkeppnin hjá félaginu er ansi hörð fyrir hinn tvítuga de Ligt. Þegar de Ligt hefur spilað hefur Juventus haldið hreinu fjórum sinnum í þrettán leikjum.
Athugasemdir