Fotbolti.net
14.09.26 - 15:51
Elvar Geir Magnússon

Orðspor enskra dómara að fara í vaskinn

Phil Foden og Michael Oliver.

Phil Foden og Michael Oliver.

Canon

Mynd: EPA

Það hafa verið mikil vandræði í ensku úrvalsdeildinni með að ná tökum á notkun á VAR myndbandsdómgæslunni og oft vantar samræmi. Það komu stór og umdeild atvik upp um helgina.

Ian Ladyman, ritstjóri fótboltafrétta hjá Daily Mail, segir að breytinga sé þörf meðal þeirra sem stýra dómaramálum í enska boltanum.
Viðurkenna mistök - Enzo Fernandez var í rangstöðu
TENGT EFNI

Viðurkenna mistök - Enzo Fernandez var í rangstöðu

„Hversu lengi eigum við að þurfa að þola þetta áður en Howard Webb, yfirmaður dómaramála, axlar ábyrgð og annar tekur við af honum?" spyr Ladyman.

„Webb er góður maður sem hefur heilbrigð sjónarmið varðandi mál á borð við ábyrgð og sýnileika. Hann hefur reynt að vinna að framþróun. Eftir VAR klúðrið í leik Arsenal gegn Sunderland á laugardaginn og síðan algjört hrun á Old Trafford heldur orðspor enskra dómara áfram að fara í vaskinn."

„Þegar á hólminn er komið þá ber Webb ábyrgð á þessu. Þetta er hans verkefni, hans dómarar og hans svið. Hvort sem þeim tekst vel til eða illa, þá fellur ábyrgðin á hann. Það er of mikið sem er að, of mikið sem fer úrskeiðis."

Ensku dómarasamtökin hafa viðurkennt að dómarateymið hafi gert mistök þegar sigurmark Erling Haaland fékk að standa í leik Man City gegn Man Utd á Old Trafford í gær.

„Að þurfa að senda félagi á borð við United bréf til að biðjast afsökunar á mistökum í stærsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni varpar mjög slæmu ljósi á dómarasamtökin. Það virðist sem sumir dómarar deildarinnar kunni einfaldlega ekki skil á reglunum eða leiknum sjálfum. Eða, ef þeir þekkja reglurnar, þá vita þeir ekki hvernig á að beita þeim," segir Ladyman.

„Hvernig má þetta vera? Hvernig komumst við á þennan stað? Og getum við treyst því að Webb leiði okkur aftur á rétta braut? Ég er ekki viss um að við getum það. Það gæti verið að koma tími á breytingar."
Howard Webb (til vinstri) er yfirmaður dómaramála í enska boltanum.

Howard Webb (til vinstri) er yfirmaður dómaramála í enska boltanum.

Canon

Mynd: Skjáskot

Orðspor enskra dómara að fara í vaskinn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.