Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
   lau 09. maí 2026 19:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Badu fann fyrir létti - „Ég á ekki að bregðast svona við"
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vestri nældi í sinn fyrsta sigur í Lengjudeildinni í ár þegar liðið vann HK 4-3 í hörkuleik á Ísafirði. Fótbolti.net ræddi við Daniel Badu eftir leikinn.

„Manni er létt, það var stress í lokin en ég er mjög ánægður að við náðum í þrjú stig, við þurftum á þeim að halda," sagði Badu.

Lestu um leikinn: Vestri 4 -  3 HK

Badu fékk gult spjald fyrir mótmæli eftir þriðja mark HK.

„Mér fannst þetta vera brot. Mér sýndist aðstoðardómarinn vera með sama sjónarhorn og ég og hefði átt að sjá augljóst brot. Ég á ekki að bregðast svona við en í augnablikinu virtist þetta augljóst svo ég var svolítið pirraður," sagði Badu.

Vestri hafði aðeins skorað eitt mark í fyrstu tveimur leikjunum.

„Við sköpuðum færi gegn Grindavík og gegn Fylki. Ég hafði ekki miklar áhyggjur, það er svona í fótbolta að þegar þú skapar þér stöðugt færi þá kemur þetta. Við sköpuðum ekki eins góð færi og hinir í dag en við skoruðum fjögur," sagði Badu.
Slapp
banner